Ísland sem eitt ríkasta og valdamesta land á Jörðinni...

Já, eins og kemur fram í dómnum mínum skrifa ég mun meira en þið vitið. Hvaða dóm? Þessum dóm:
https://www.heradsdomstolar.is/default.aspx?pageid=347c3bb1-8926-11e5-80c6-005056bc6a40&id=4d595760-99be-47cd-a100-5f38a789e5e1

Þar sem ég var saklaus dæmdur sekur fyrir heimskulegar kærur. Hylming sem var fyrnd. Vopnalagabrot, ég hef brotið vopnalagabrot oft á ævi minni. Það er alltaf sekt búið. Enginn dregur mannveru inn í réttarsal útaf "Vopnalagabrot". Nema maður væri að flytja inn gáma af hriðskotabyssum og sprengjuvörpum. En að eiga hníf og hálf ónýta 22.cal kindabyssu heima hjá sér. Sekt. Ég hef verið tekinn sem unglingur með stolna afsagaða hagglabyssu úti í samfélaginu. Sekt. Svo brot gegn valdstjórninni, útskýrði í blog færslu um daginn hvernig það fór fram ef þið hafið áhuga er sú færsla hér:
https://dyrlingur.blog.is/blog/dyrlingur/entry/2263488/

Fram kemur í þessum svokallaða dóm þessi orð:
"Dómari telur augljóst að virtum rannsóknargögnum að miklu meira hafi verið lagt í rannsókn málsins en háttsemi ákærða gaf tilefni til og þykir því rétt að tveir þriðju hlutar málsvarnarlauna skipaðs verjanda ákærða, Guðmundar St. Ragnarssonar hdl., sem þykja hæfilega ákveðin, 564.750 krónur, greiðist úr ríkissjóði. Tillit er tekið til greiðsluskyldu virðisaukaskatts af málsvarnarlaunum. Þessu til stuðnings bendir dómari sérstaklega á rannsókn á skrifum og hugarórum ákærða sem ekki hafa nein tengsl við þá háttsemi sem hann er ákærður fyrir." - Það sem hann er að tala um er að dómarinn fékk í hendurnar heilu búnkanna af blöðum. Eins og ég hef tekið fram skrifa ég mjög mikið. Rapp texta, Ljóð, Smásögur og Sögur. Ég skrifa líka "Hugmyndir" og því um líka hluti. Því er dómarinn að benda á að þetta lið virkilega hélt mér í fangelsi í 9 vikur saklausum rústuðu heilli önn af námi mínu fyrir þessar rusl ákærur.

-

En förum út í það. Ég skrifa mun meira en eitt einasta orð sem ég skrifa á veraldarvefnum. Veröldin gæti ekki haldið uppi við að lesa það sem ég skrifa svo mikið skrifa ég. Enginn gæti lesið non stop það sem ég skrifa næstum non stop. Lögreglan spurði mig 2012 "Hvernig nenniru að skrifa svona mikið með hendinni þinni". Segi það sama og þá, hef gert það allt mitt líf. Ég er gríðalega fljótur að skrifa á lykklaborð á sama tíma er ég gríðalega fljótur að skrifa með blað og penna. Skrifa með litlum stöfum mikið. Ég er samt Millennial og því skrifa ég ílla þó ég skrifa mikið. Enda "lykklaborð" kynslóðin. Eins og mörg ykkar horfi ég bara beint á skjáinn skrifandi.

En undanfarin ár, eftir að ég var í gæsluvarðhaldinu árið 2012 breyttist heili minn aftur. Þið vitið hvernig þetta er. Allavega þið sem hafið orðið fyrir alvarlegum áföllum. Hugur manns þroskast. Allavega hugur minn. Ég byrjaði að fá hugmyndir um hvernig hægt væri að betrumbæta Jörðina sem heild og Ísland aðalega. Með hverju ári sem leið, meira og meira og meira. Kominn á það stig að ég er virkilega kominn með skilninginn, hugmyndina og þekkinguna í hvernig við getum breytt Íslandi úr "Íslandi" í "Ísland ríkasta og valdamesta land á Jörðinni". Þess vegna byrjaði ég að segja aftur og aftur síðustu ár "Ísland er síðasta og eina landið á Jörðinni sem getur bjargað heiminum frá þessari íllsku sem er að flæða yfir plánetuna og því er ég núna undanfarið byrjaður að segja að þið verðið að treysta mér alveg eins og ég verð að treysta ykkur og því um líku dóti. "Ég er sá sem þið eruð búin að vera bíða eftir". Heili minn virkilega inniheldur lausnina á öllu! En það ógnar gríðalega þessari velferðaráætlun fasistana um heim allan. Sem vilja troða á okkur öll kerfi sem þau hafa ákveðið. Sem þau kalla "The fourth industrial revolution" og eða eins og ég vill kalla það "The fourth reich". Þetta er sama fólkið en nota önnur orð. Nákvæmlega sömu fasistar og foreldrar þeirra voru í Nasistaflokkum um alla Evrópu. Nákvæmlega sömu fasistar og voru í Hitler Youth en eru orðnir gamlir karlar núna. Sendandi út "The Great Reset". Sendandi út auglýsingar líkt og "You will own nothing yet be happy". Mitt Ísland munt þú eiga meira og vera mun ánægðari. Í mínu heimsveldi sem er algjörlega andstætt þeirra munu þið ekki bara vera ríkari og hamingjusamari. Börnin ykkar munu lifa yndisleg líf. Börnin þeirra líka. Svo framvegis og framvegis. Ísland mun vera um alla veröld og mun þetta því ekki bara vera fyrir Íslendinga þó Ísland er kjarninn bakvið þetta allt. Þetta þarf að byrja á Íslandi og dreifast út. Í formi Íslensk fyrirtæki um heim allan. Í formi Íslenskar rannsóknarstöðvar um heim allan. Í formi að Ísland kaupir lönd um heim allan. Þegar ég segi Ísland er ég að tala um ykkur. Þið sem lifið hérna. Við munum verða ríkasta og valdamesta land á Jörðinni og þó ég get gefið ykkur innsýn í hvernig það lítur út sem. Get ég ekki sagt ykkur hvernig það verður gert afþví þið munuð ekki skilja það. Allavega ekki mörg ykkar. Það gæti verið að nokkur ykkar myndu sjá það sem ég myndi segja og virkilega "Hann hefur svarið við öllum vandamálum Íslands og Jarðarinnar". Afþví ég hef það. En það kemur ekki í sama formi og þetta hyski um heim allan. Þar sem þetta ríka fólk er að troða á okkur þeirra hugmyndafræði. Ísland væri "Viltu þetta? Viltu lifa í þessu öfluga samfélagi? Viltu að börn þín fái menntun í þessu öfluga samfélagi? Já? Þér er velkomið að taka þátt. Nei? Þér er velkomið að taka ekki þátt". En ég vildi að ég gæti sýnt ykkur það sem ég sé. Þessa þvílíkt öflugu veröld. Þetta þvílíka heimsveldi sem kallast Ísland. Þetta gríðalega ríka land sem kallast Ísland. Með gáfaðasta fólk á Jörðinni að gera Ísland betra og betra og betra. Ég er ekki einn af þessum "Global Warming" nut jobs. En ég er Íslendingur og þekki ég því hve mikilvægt er að skilja veröldina við olíu og öllu því tengdu. Ég skil að nota ekki gas fyrir hita. Ég skil að mun umhverfisvænari leiðir til að láta samfélagið virka. Alveg eins og ég skil hve mikilvægt það er að geta haft jafn fallegt land og Ísland sem maður getur gengið upp á fjöll. Andað inn í sig öflugt hreint loft. Horft á fallega útsýnið. Virkilega farið niður á hné fyrir framan vatn rennandi niður fjallið og drekka beint úr því vatn. Þó ég sé ekki "Global Warming" nut case vill ég samt að veröldin haldi í fegurð sína sem land, vatn, jörð og eldur. Íslandið sem ég sé er þannig. Ég ólst upp sem barn í Trasten, Gislaved. Ef þið skoðið það á Google Earth sjáiði að það er gríðalegt skógarsvæði bakvið hverfi mitt ennþá í dag. Þannig ég ólst upp leikandi mér í þessum fallegu grænu skógum Svíþjóðar. Ég ólst upp í þessari gríðalega fallegu og hreinni náttúru Íslands og enginn getur ímyndað sér að ég hafi áhuga á að skemma þessa fegurð. Það væri eins og að skemma mínar eigin góðu minningar.

Skoðum bæinn Gislaved og hverfið Trasten. Ég bjó í blokkinni sem rauða örin bendir á. Bærinn er umkringdur skóg. Hverfi mitt er við hliðiná skóg. Þannig ég er langt í frá mannvera sem vill skaða þessa fegurð sem ég hef sem minningar í höfði mínu. Íslandið sem við myndum smíða væri virkilega landið sem börnin ykkar eftir þúsund ár munu geta sagt við "Það voru forfeðrar mínir sem gerðu þetta" brosandi.

Trasten

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband