Black Lives Matter Marxistinn!

Ég sá þessa frétt óvart fyrst á Breitbart. Ég veit ekki mikið um Breitbart annað en að vinstri sinnað fólk kallar þann fréttamiðil "heilaþvottastöð fyrir hægri sinnaða". Eitthvað CNN, MSNBC, NBC, so on allt vinstri sinnaða ruslið. Nema Breitbart er "Hægri". Þannig eftir að ég las þessa frétt um þennan fyrverandi Marxista og fyrverandi meðlim Black Lives Matter á Breitbart vildi ég auðvitað deila því hér. Svo aðrir geti lesið það sem ég var að lesa. Hve miklir hræsnarar þessir Black Lives Matter Marxistar eru. En þá fór ég að hugsa, fólk mun ekki taka mark á Breitbart? Hoppaði ég því á veraldarvefinn og fann tvo eða þrjá aðra fréttamiðla segjandi það sama. Að þessi Marxisti sem hatar Kapitalisma og Lögreglu er að byggja öryggisvegg í kringum sitt gríðalega dýra hús. Hús sem heimskt fólk um heim allan borguðu fyrir með því að senda dollar hér, hundruð dollara þar til að styðja BLM. Minnir gríðalega á tímabilið hvernig Hitler komst til valda. Fjárfestar og ríkt fólk um heim allan voru að senda honum og flokk hans peninga sem var notaður til að búa til búninga og berja fólk úti á götu.

Nema Hitler laug ekki. Hitler sagði frá upphafi að hann væri í pólitík. Þessir fjármunir færu í pólitískan stuðning og endalaust meira. Þannig fólk þá sendu honum og flokk hans peninga hér og þar.

Alveg eins og BLM. Nema þau ljúga og segjast vera fyrir "Black Lives Matter" jafnvel þó þau hafi fengið fjárhagsstuðning til þess að koma hreyfingu sinni áfram. Þau virkilega hafa ekki eytt dollar í að hjálpa fjölskyldum þeirra sem þau voru að hagnast á. Peningarnir voru notaðir í að fjármagna hin og þessi lög í gegn hér og þar um Bandaríkin. En á sama tíma var einn leiðtoginn að nota peningana í persónulega notkun. Kaupandi hundruð þúsund til milljóna dollara hús í fleirtölu. Gera líf sitt betra í þessari veröld Kapítalisma. Nú þarf hún að byggja vegg, sem er skiljanlegt. Ef ég væri blökkumaður frá South Central L.A.Crenshaw L.A. eða önnur fátæk blökkumanna hverfi í L.A. Þá myndi ég taka fjölskyldu mína og ganga alla leið heim til hennar og byrja heimta peninga mína af henni. Alveg eins og eftir O.J. Simpson réttarhöldin var honum sama sem hent út úr hverfinu. Með dagleg mótmæli og endalaus skilti sem á stóðu "Murderer" og því um líkt fallegt dóteri. Maðurinn sem allt og allir sáu ekki húðlitinn á. Breytti réttarhöldum sínum úr litlaus réttarhöld yfir í "I am black, they are framing me". Þannig eftir það var komið fram við hann eins og svartan mann.

Ég held það sé eitthvað svipað í gangi hjá henni. Þessum Black Lives Matter, Marxista. Þó fjölmiðlar tala ekki um það. Sem er skiljanlegt, enda myndu fjölmiðlar ekki tala gegn ríka hvíta fólkinu í þessum hverfum Bandaríkjanna. Ég held að það sé reglulega verið að mótmæla því að hún búi þarna. Verið að mótmæla því að hún kalli sig Marxista á sama tíma og hún lifir lúxus lífi Kapítalisma. Mest af öllu eru æsifréttamenn mjög líklega alltaf að ónáða hana líka. Þannig þessi mannvera sem þykist standa fyrir svört líf í Bandaríkjunum, þessi mannvera sem þykist vera Marxisti, þessi mannvera sem þykist vera "Open Borders" og "No Police" er mjög líklega búin að læra að já... Það sama og rapparinn "The Game" lærði þegar hann varð frægur, ríkur rappari. Hann getur haldið áfram að lifa í "Bloods" hverfi í fátæku hverfi í L.A. "Keepin it real", "Hanging with the homies". Það þýddi samt ekki að um leið og hann fór úr húsinu að halda tónleika hinumegin á landinu að það var ekki brotist inn í húsið hans og öllum verðmætum stolið. Aftur og aftur og aftur sem endaði með að hann flutti úr hverfinu. Þetta fólk getur hatað lögregluna eins og það vill þangað til þau þurfa á henni að halda. Þetta lið geta verið á móti skotvopnum þangað til þau þurfa á lífvörðum með skotvopn að halda. Þetta lið getur trúað því að ef þau verða rík að "Ghetto-ið" muni bera virðingu fyrir eignum þeirra þangað til þau læra að fátækt fólk gerir allt til að græða af þeim. Svo elska ég mest í dag hvernig The Game rapparinn talar um að "síðast þegar ég vissi", hvernig hann væri ennþá tengdur "Bloods" og þeir væru hans "Homies". Sem er mjög líklega satt. En ef þetta lið eru svona miklir "Homies" hvar var þetta lið þegar fólk var alltaf að brjótast inn í húsið hans í hverfinu? Sama með þennan geðveika wannabe BLM mannveru sem er núna fyrverandi BLM. Bara orðin "Another rich black person". Eða hvað sem maður getur kallað það?

https://www.breitbart.com/politics/2021/06/11/photos-show-blm-founder-builds-wall-around-home-resigning-amid-lavish-lifestyle-criticism/

https://nypost.com/2021/06/11/blm-co-founder-patrisse-cullors-reportedly-builds-fence-gate-around-1-4m-home/

https://www.ibtimes.sg/blms-patrisse-cullors-puts-expensive-electric-fencing-around-1-4-mln-home-after-berating-police-58092

Ég persónulega myndi vilja peninga mína til baka eftir að lesa þetta. Hvernig hún og aðrir gerðu ekkert annað en að gera sig ríka fyrir sína eigin sjálfselsku.

Ein spurning, eftir að fólk um heim allan sá hvað National Socialist Party Þýskalands gerði í áratugi og alveg til enda stríðsins. Ef þið væruð ríkt fólk mynduði ekki vilja peninga ykkar til baka? Er mjög viss um að svart fólk um heim allan sé með sömu skoðanir. Horfandi á hverfi sín brenna í nafni "Black Lives Matter". Maður er virkilega horfandi á viðtöl við alvöru svart fólk í Bandaríkjunum sem segja beint út: "Þetta fólk býr ekki einusinni hérna. Þau eru að koma frá öðrum borgum og koma hingað bara til þess að stela, skemma og brenna". Sönn saga. Það var Black Lives Matter að fjármagna. Afhverju? Sömu ástæðu og Nasistar. Því meiri athygli því meiri peningar. Því meiri völd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband