Hvað veist þú um lækna og bóluefnin? Lærðu eitthvað...

Ég kom inn í þetta líf með vantraust gegn þessum Nasistum sem voru að svæfa fólk í Þýskalandi fyrir seinni heimstyrjöldina. Fólk sem var kallað "Useless Eaters". Á ensku er það kallað "euthanasia". Læknar og hjúkkur gerðu þetta við hundruðir þúsundir mannverur eins og ekkert. Í Bandaríkjunum árið 1990? eitthvað fengu læknar borgað frá Purdue Pharma til að áskrifa þetta nýja töfralyf sem deyfði verki en var ekki ávanabindandi en er nú orðinn að svokölluðum "Pandemic". Lyfin heita OxyContin og eru sama sem heroin. Þetta eru sérfræðingar og læknar sem þágu í þúsundatölu peninga til þess að tala vel um þetta lyf. Fá borgað fyrir að tala vel um þetta lyf. Fá borgað fyrir að áskrifa þetta lyf. En nú er þetta orðið að eins og ég kallaði það "Opioid Pandemic" í Bandaríkjunum.
 
Þegar ég var krakki í Svíþjóð stóð ég á bjargi horfandi niður og eldri bróðir minn var að vara mig við að standa ekki svona nálægt endanum. En ég hlustaði aldrei og varð það mér að falli. Alvöru falli, ég féll niður og rúllaði niður bratta hæð. Þangað til steinn stoppaði mig með því að nota hausinn á mér til að stöðva för mína niður. Eina sem ég man var að ég sá ekkert útaf það blæddi svo mikið úr höfði mínu yfir augu mín. Ég og bróðir minn hjóluðum á þetta svæði saman en hann þurfti að leiða mig heim. Móðir mín fór strax með mig á sjúkrahús þar sem læknir ætlaði að sprauta mig með, mjög líklega deyfiefni áður en hann myndi sauma mig. En ég virkilega öskraði og hristi mig svo það væri ekki hægt. Sama hve margar mannverur væru að reyna halda höfði mínu kjurru. Það var ekki séns að þetta efni færi í líkama minn. Það var ekki hægt að sprauta mig og því reyndi hann að búa um sárið mitt eins vel og hann gat án þess að sauma það. Ég fór aldrei til læknis sem barn, sama hvað. Sama hve oft ég steig á nagla. Sama hve oft ég datt á hjóli. Sama hve oft ég blæddi. Það var ekki séns að ég færi á sjúkrahús og var því sjúkrasaga mín engin frá sama því að ég fæddist þangað til ég varð 19 ára. Það virkilega þurfti að stinga mig fimm hnífstungur og jafnvel þá, blæðandi til dauða vildi ég frekar fara heim og búa um sárin sjálfur heldur en að fara til læknis. En ég hafði ekki mikla stjórn og eða afl til að berjast á móti enda líkaminn sama sem tómur af blóði. Þegar mér var sagt að þau þurftu að setja í líkama minn blóð úr annari mannveru sveið mér. Inn í mér voru allt þetta utanaðkomandi efni flæðandi um líkama minn. En auðvitað eftir það byrjaði ég að geta hitt lækna og svo framvegis.
 
En það þýðir samt ekki að ég treysti þeim. Hvert einasta lyf sem þau hafa áskrifað á mig í gegnum lífið hef ég fyrst farið á veraldarvefinn og lesið allt sem til er um lyfið.
 
Ég mun aldrei taka þetta bóluefni. Jafnvel þó það yrði skylda. Ég hef aldrei látið sprauta mig með bóluefni og mun aldrei gera það. Það er ekki útaf "Covid" bóluefni og eða veirunni. Það er bara eins og ég sagði. Þessir "sérfræðingar" eru ekkert endilega með hag manns í huga. Til dæmis vita fáir að einn af ríkustu mönnum Jarðarinnar Bill Gates varð ekki ríkur á Microsoft. Hann viðurkennir sjálfur að fjárfesting hans í bóluefnum var það sem gerði hann ríkasta mann á Jörðinni. Enda getur bóluefnið kostað 2 dollara að framleiða en er selt á 50 dollara eða meira. Sem skiptir litlu máli þar sem WHO kaupir flest öll þessi bóluefni. En þegar læknar hafa unnið eins og þeir gerðu fyrir Nasista. Þegar læknar gerðu tilraunir á lifandi mannverum bæði á tímum Nasista og í Bandaríkjunum. Þegar læknar fá borgað til þess að tala um eitthvað "undralyf" sem kallast OxyContin og skrifuðu það út eins oft og þeir gátu til að hagnast sem mest og þar með búa til faraldur. Þeir geta verið sérfræðingar en þeir eru langt í frá með hug sinn á heilsu mannkyns þegar kemur að þeim að selja vöru og fá borgað fyrir það vs þeir að fá ekki borgað fyrir það, myndu þeir ekki segja orð um þetta.
 
 
Hvað heldur þú að Bill Gates og þessi fyrirtæki séu að borga læknum til að segja að bóluefni þeirra er eitthvað sem veröldin verður að fá? Öll veröldin er að kaupa þetta. Hve mikið helduru að þessi fyrirtæki eru að græða? Hve mikið er Bill Gates að græða?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband