27.10.2021 | 10:41
Fita sem þú sérð ekki...
Ég hef í nokkur ár verið að klípa í fituna á maganum mínum að reyna skilja "hvað er í gangi? Afhverju er ég með bumbu ef ég hreyfi mig svona gríðarlega mikið? Afhverju er ég með bumbu ef ég klípi í magan og finn ekki fyrir fitu?"
Eins og ég segi ég finn SMÁ fitu svo vöðva. Samt útþaninn maga. Þannig ég fór að leita það uppi.
Hvað finn ég? Það eru til tvær tegundir af fitu. Fita sem þú getur snert(Ekki beint snert en þið skiljið mig). Svo fita inn í líkama þínum. Ég hef virkilega ekki lært um neitt ógeðslegra. Það getur valdið sykursýki. Háan blóðþrýsting og kólesteról. Valdið hjartaáfalli. Gert svo þú fáir "magasár". Þar sem þú ert virkilega að brenna í maganum. Og mikið meira.
Eigum við að skoða þessa ógeðslegu fitu? Fólk með magavöðva getur haft þessa fitu án þess að vita það....
Sjáiði þennan viðbjóð? Maður er auðvitað ekki lengur 25 ára vöðvafjall. Maður er núna bara með vöðva og með þvílíka bumbu. Ég var virkilega aldrei að skilja hvað væri í gangi. Klípandi í maga minn. Virkilega að reyna finna "FITU!!!" aldrei að finna hana. Auðvitað finnur maður fitu en ekki eins og maginn manns er. Maður finnur fitu, svo vöðva. Samt er maginn útþaninn. Ég hef alltaf reynt að hugsa til baka þegar ég var ungur krakki. Saga sem ég verð að deila. Ég var auðvitað horaður, fjörugur ungur krakki sem hreyfði mig gríðalega. Gríðalega. Gríðalega mikið. Það var maður í sundi sem var með gríðalega bumbu og ég sem barn horfði á minn maga og hans maga og eins og börn gera. Spurði beint út "Afhverju ertu með svona stóran maga?" Hann svaraði því eins einfaldlega og hann gat fyrir barn eins og mig og sagði að "ofninn í maganum á honum væri ekki jafn duglegur að brenna fitu þegar hann var orðinn svona gamall". Þessi útskýring augljóslega festist í höfði mínu af því ég er orðinn 38 ára(25 Október) :D og var ennþá að hugsa út í hans útskýringu. Að reyna skilja hans útskýringu á að "ofninn hans væri ekki jafn góður að brenna fitu á hans aldri og á yngri árum". Ég auðvitað hugsa það sama í dag, nei... Ég veit það er svo í dag. Líkami okkar brennur fitu minna því eldri sem við verðum. Minni karlhormónar, minni vaxtarhormónar. Svo framvegis. En ég var virkilega klípandi í maga minn og fann ekki þykkt lag af fitu og skildi ekkert af hverju það væri bumba á mér... Ég lærði þetta bara í vikunni. Eins og stendur í einni myndinni eru tvær tegundir af fitu. "Subcutaneous fat" og "Visceral fat". Það er fitan sem gerir það að verkum að magi minn er byrjaður að þenjast út. Meira með hverju ári...
Þessi fita er ekki bara í kringum garnirnar. Hún er utan um öll önnur innefli. Hún er utan um hjartað. Þegar ég lærði þetta... Í vikunni. Líður mér ógeðslega. Vitandi að inn í mér er þetta ógeð. Bara af því ég er ekki að borða réttan mat. Bara af því ég leyfi mér hvítan sykur og annan viðbjóð. Maður virkilega heldur að maður getur borðað poka af Haribo nammi einn daginn en hreyft það úr sér næstu vikuna. Er maður að læra hve rangt maður hefur það. Maður þarf virkilega að fara taka mataræði sitt í gegn því eldri sem maður verður.
Núna skiljiði afhverju karlmenn fá bumbu því eldri sem þeir verða. Vona að þið voruð að læra eitthvað nýtt og ef þið eigið í sama vandamáli og ég að stríða. Að þið virkilega endurskoðið hvað þið borðið. Af því eins og ég sagði. Þessi viðbjóður er að safnast utan um hjarta þitt. Bæði við karl og kvenmenn eigum við þetta vandamál að stríða og er virkilega kominn tími til að endurskoða hvað maður verður að borða. Nei ég er langt í frá að reyna breyta ykkur í grænmetisætur. Enda er prótein mjög holt fyrir líkaman. Ég er bara segja leitið uppi fæðu sem þið getið borðað sem kemur í veg fyrir að þetta ógeð safnast saman inn í líkama ykkar og býr til krabbamein eða eitthvað annað ógeð inn í ykkur. Minnir meira segja að ég las að þessi fita getur leitt til alzheimers....
Þetta er viðbjóðsleg fita sem við þurfum ÖLL!!!!!!!! Að losna við.
Hvað segi ég alltaf? Mér er alveg sama hvaða pólitíska skoðun þú hefur. Ég elska ykkur öll. Þess vegna er það skylda mín að deila þessu til ykkar að læra ef þið vitið ekki af þessu. Af því þetta er virkilega hættulegt heilsu ykkar. Hvaða læknir hefur sagt ykkur frá þessu á Íslandi þegar þið hittið þá með vandamál sem viðkoma eitthverju þessu líku? Mjög fáir býst ég við enda eins og ég hef oft sagt eru læknar Íslands ekki "Dúx" nemarnir. Læknar Íslands eru nemarnir sem rétt slefuðu í gegnum prófin sín. Á meðan alvöru læknarnir eru út í heimi á 200-500 þúsund Evrum/Dollurum á ári er Ísland með lækna sem eins og ég sagði. Vita ekkert. Hef margar sögur að segja. Hef heyrt margar sögur. Veit þið hafið líka gert það og hafið mjög líklega sjálf sögur að segja. Það gerist þegar við höfum ríkisstjórnina með fingurinn í heilbrigðiskerfi Íslands.
Kær kveðja.
Lærið um þetta og hvernig þið getið bjargað ykkur frá þessum dauða sem læknar eru ekki einusinni að hjálpa ykkur með.
Lærið um þetta og hvernig þið getið bjargað ykkur frá þessum dauða sem læknar eru ekki einusinni að hjálpa ykkur með.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.