20.9.2021 | 01:31
Eigum við að biðja til Guðs saman?
776-2323 - Driiing.... Driiing.... Driiiing....
Guð minn. Takk fyrir að svara. Ég veit ég og þú höfum ekki alltaf séð veröldina sem þú smíðaðir á jafnan hátt. Eða kannski við gerum það. Þar sem þú virðist hafa yfirgefið þessa veröld um leið og mannverur hættu að hengja upp á vegg krossa. Þú skapaðir okkur í þinni ímynd og skil ég vel að þú yfirgefur veröld sem hefur ekki einusinni nægilega mikinn áhuga á því sem þú fórnaðir fyrir okkur í formi sögur til að byggja okkur upp. Nú halda allar mannverur að Biblían sé eitthvað líku Kóraninum og þú hafir sett lög í bókina til að lifa eftir. Annað en boðorðin tíu hefur þú engan áhuga á að láta okkur lifa eins og þrælarnir sem þú hjálpaðir Móses að koma til öryggis. Hver sem les bók þína veit að hún er einfaldlega gerð til að hjálpa okkur sjálfum að komast í gegnum þetta líf sem við lifum í. Leiðbeinir okkur að lifa góðu og heilbrigðu lífi á meðan við lifum svo við getum komist í ríki þitt þegar við deyjum.
En hafði ekki samband við þig til að tala um það. Eins og ég sagði við höfum verið með og á móti hvort öðrum. Ég hef öskrað á þig að fara til helvítis. Ég hef sagt að ef þú sendir mig til helvítis muni ég drepa son þinn Lúsifer og taka yfir helvíti. Sársaukinn í þessu lífi hefur verið gríðalega mikill. Það er erfitt að horfa á lífið og segja "Þetta er hluti af áætlun þinni". En á sama tíma spyr maður er þetta hluti af áætlun þinni? Hver annar en ég get gert það sem gera þarf? Hvort sem þetta voru djöflar, frjáls vilji og eða jafnvel Englar að brjóta á mér allt mitt líf. Að reyna drepa mig allt mitt líf. Veit ég ekki. Kannski er ég svo sérstakur fyrir þér að þín eigin afkvæmi hata mig. Stundum virðist það vera svo. Stundum spyr ég sjálfan mig ert þú að senda Engla til þess að láta mig trúa að ég sé næstum því að deyja svo skelin á mér verði harðari fyrir komandi tíð. Stundum spyr ég sjálfan mig ert þú og sonur þinn Lúsifer í togstreytu um sál mína. Ætli hver einasta mannvera geti ekki spurt sig að því. Þegar maður lifir í veröld þar sem sögur okkar segja að þeir sem drápu mest af mannverum komust lengst í lífinu. Allir þessir "Conquerors" lifa ennþá í dag. Við lifum í þeirra veröld. Það er alltaf það sem ég hef óttast og þú veist það vel. Ég vill framkvæma vilja þinn. En eina sem ég sé er svo mikill dauði á samvisku minni. En eftir þann dauða sé ég græna grasið rísa aftur. Lífríkið í náttúrunni rísa aftur. 50%? 70%? 99%? Hve mikið af mannverum þarf ég að þurrka út svo við getum komist inn í Garð Edens aftur.
Auðvitað er það grín. En þetta hlutverk sem þú hefur gefið mér. Mun hjálpa bæði mannkyninu og lífríki Jarðarinnar gríðalega mikið. Ég skal vinna vinnuna en þú verður að hjálpa mér. Ég get ekki gert það ef ekki ein einasta mannvera mun trúa á áætlun þína. Ég mun vera tæki og tól þitt á Jörðu niðri. En við verðum að finna mannverur sem munu hafa áhuga á framtíð mannkyns.
Hvernig skelli ég aftur á?
Amen.
P.S.
Ef einhver á þetta símanúmer biðst ég afsökunar. Af því þetta er símanúmerið til Guðs í Bruce Almighty.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.