13.2.2021 | 20:28
Lífið er ástarsamband. Elskaðu lífið eins og þú vilt að lífið elski þig.
Ég hef oft hugsað þetta. Mig langar bara að "þjóna". Mig langar bara að hjálpa þér að gera líf þitt betra. Ég hef meira segja oft hugsað að klára það stutta sem ég á eftir í framhaldsskóla(sem var skemmt 2012 útaf ólöglegu gæsluvarðhaldi heimskra lögreglumanna í Reykjanesbæ, hvít skyrtu lögreglumenn), að klára það nám og fara í háskólanám og læra sálfræðinám. Afþví mig langar svo mikið að hjálpa fólki sem þarf hjálp á að halda. En það kemur alltaf "það er ekki nóg". Afþví mig langar að hjálpa svo mikið meir en bara nokkrar persónur sem eiga erfitt í lífinu. Hirða af þeim pening bara til þess að vera einhver lúser sem segir "Og hvernig lætur það þig líða?", "Hvað finnst þér um það?" og bla bla bla...
Það er svo mikið svik og svindl á þá kúnna sem maður er að þykjast hjálpa. Já, auðvitað myndi maður hjálpa þeim með því að gefa þeim ráðleggingar. Eins og "Hvað segir þú um að ég og þú gerum samning? Sá samningur er þú ferð út að ganga 10 mínotur á dag í einn mánuð og svo ræðum við um hvernig áhrif það hefur á heilsu þína" og því um líkt. Afþví við öll sem vitum eitthvað. Vitum að 10 - 60 mínotna ganga einusinni á dag alla daga í heilan mánuð er virkilega gríðálega holt. Fyrir huga, líkama og sál.
En mig langar að hjálpa fleira fólki. Eins og það er kallað í hagfræðinni. Ef ég væri Micro eða Macro væri ég Macro, alltaf Macro. Ég hugsa alltaf "Macro". Ég hugsa ekki hvernig er hægt að reka verslun. Ég hugsa ekki hvernig er hægt að reka bóndabæ.
Ég hugsa hvernig er hægt að reka verslanir. Bóndabæi. Á landsvísu. Hvort það er galli eða kostur hef ég ekki ennþá lært afþví ég hef ennþá ekki reynt á þann hæfileika minn. Ekki ennþá gefið mér það tækifæri.
Ég sagði um daginn að ég ætla gera það og ég var ekki að djóka. Ég ætla virkilega að berjast af öllu afli fyrir hag Íslendinga. Þegar kemur að þeim Íslendingum sem ekki vilja eða skilja það sem ég mun berjast fyrir. Verður svarið alltaf eins. Allt sem ég geri er gert fyrir hag allra jafnvel þó fólkið sem vill það ekki viti ekki ennþá að það vilji það og er þeim í hag en þau munu verða ánægð þegar þar að kemur.
Sem verður satt, afþví ég hef sagt svo oft að það eina merkilega sem Ísland hefur gert er þrennt. Að hafa verið fundið og landnumið. Að fá sjálfstæði sitt 17 Júní 1944 frá Dönum. Að hafa elsta virka Alþingi á Jörðinni. Það er virkilega ekki hægt að veita Ísland jafn mikla virðingu og fyrir akkurat það. Að virkilega hafa elsta virka Alþingi á Jörðinni. Yfir þúsund ára gamalt. Í yfir þúsund ár hafa mannverur á Íslandi mætt á Alþingi Íslands til þess að leysa vandamál okkar. Það er virkilega ekkert fallegra.
Ég ætla að skoða þegar næsta ríkisstjórn slitnar hvað ég get gert fyrir Ísland og ef að Íslendingar samþykja þjónustu mína. Þjónusta mín verður sama sem engin sem alþingismaður. Því verð ég að verða ráðherra. Ég kann nokkrar leiðir til þess að ná til fólksins sem annað fólk kann ekki.
Sjáum svo til, vill fólkið halda áfram að vera landið sem ekkert hefur gert eða vill landið umbreytast í ríkasta land norðurlandandana. Umbreytast í land sem er öfundað af Evrópu og lengra.
Ríkisstjórn sem mun gera allt fyrir alla sína ríkisborgara. Ég því miður missti af þessu ári en verð tilbúinn þegar ríkisstjórn Íslands hrynur. Íslendingar eru orðin svo vön þessari ríkisstjórn Íslands. Sem skiptist á að svindla og svíkja þau. Það er ég að tala um þegar ég segi þetta eru breytingar sem Íslendingar ekki endilega vita að þau vilja en munu vilja þegar það er breytt. Endalaust meir.
Þjónar Íslands.
Kær kveðja.
Einar Haukur Sigurjónsson.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.