Ræðum nokkur málefni.
Skólinn frá 3-6 á Íslandi var mjög, mjög, mjög lélegur mér. Við erum að tala um að kennararnir voru svo mikið rusl að ég skil ekki einusinni afhverju þau fengu laun fyrir vinnu sína.
Svo frá 7-10 bekk voru kennararnir líka gríðalega lélegir.
Allir kennarar í öllum fögum. Við erum að tala um að einhver "Nonni Mörgæs" eins og hann var kallaður mætti í stærðfræðitíma og taldi upp hverjir voru mættir og fór svo bara. Það var val nemendana hvort þeir vildu hanga í kennslustofu í um klukkutíma eða fara. Þannig, það var virkilega ekki kennt neitt í stærðfræði frá 8 bekk til 10 bekk. Kennararnir gerðu virkilega EKKERT!!!! Til þess að reyna vinna úr vandamálinu sem var nemandinn. Þannig skólakerfið féll ekki bara mér heldur hundruðum nemendum. Æskuminningar mínar af skólakerfinu var að þetta var mesta rusl sem til er á Jörðinni.
Hinsvegar var einn kennari í Holtaskóla sem var góður kennari. Þó hún var ekki kennari minn leyfði hún mér að hanga í tölvuskólastofu skólans eins mikið og ég vildi. Jafnvel þó það voru nemendur eða ekki. Ég var þar frá degi til skólalokun. Þar sjálflærði ég heilan helling í gegnum veraldarvefinn. Við erum að tala um 14 ára lítið nörd hangandi alla daga í skólastofunni að læra forritun, læra búa til síður, læra allt á milli himins og Jarðar þegar kom að tölvum.
Það sorglega við það allt er að ef skólinn sjálfur hefði haft eitthvað vit í höfðinu á sér hefðu þau getað hjálpað mér svo leið mín í lífinu færi þá leið. Að ég væri menntaður forritari, væri að smíða vefsíður hægri og vinstri eins og ekkert. Alveg eins og ég var að gera. Ef skólinn sjálfur hefði eitthvað vit í höfðinu hefðu þau beint mig að gríðalegri öflugri menntun í þessu. Við erum að tala um internetið var mjög nýtt þegar ég var að þessu. Það voru ekki margir að smíða flottar vefsíður. Forrita flott forrit. En þarna var ég í kennslustofu í fjögur ár skrópandi í öllum tímum að fínpússa hægileika sem varð að engu. Aftur, þökk sé þessu rusli sem kallast Holtaskóli Keflavíkur. 7-10 bekk. Þegar ég mætti í samræmduprófin? Hvað sem þau voru kölluð féll ég í þeim öllum enda lærði ég ekkert öll þessi fjögur ár annað en það sem var á veraldarvefnum. Lærði það góða og það slæma. Ef mér var ílla við mannveru bræddi ég út internetið þeirra. Afþví þetta var "Skóla internet" vs 64bit hringja inn internet einstaklinga. Ef mér var ílla við vefsíður fólks eyddi ég þeim. Þannig þau hefðu getað gert eitthvað við þennan heila sem hefði gert samfélaginu gott. Löngu á undan öllu þessu rusli sem veröldin var að smíða. En Holtaskóli var bara enn eitt ruslið í þessu lífi sem horfði framhjá öllu sem maður gat og horfði á það sem maður gat ekki. Þó að ég virkilega skrópaði fyrst "reglulega í 7-8 bekk" og svo "allan 9-10 bekk". Það var virkilega enginn Einar Haukur Sigurjónsson í bekknum og skólinn tók ekki eftir því. En ég var eins og ég sagði annarsstaðar að fínpússa huga minn en ég gat aðeins orðið eins góður og ég gat orðið. Internetið hafði ekki öll svörin. Þar þurfti "kennara" á háskólastigi til að kenna manni næstu skrefin. Maður spyr sig, er skólakerfið jafn mikið rusl í dag og þá? Afþví, þá átti skólakerfið að vera orðið mjög gott fyrir nemendur.
Það er skólinn sem beinir mann á þá braut í lífinu sem maður fer á. Það að maður gat virkilega verið horfinn í tvö heil ár án þess að nokkur kennari, nokkur félagsráðgjafi? skólastjóri eða allt þetta rusl sem kallast Holtaskóli Keflavíkur er virkilega sorglegt. Afþví þegar maður var búinn með Holtaskóla þá fór maður í framhaldsskóla en maður virkilega kunni ekkert nema þegar kom að tölvum. Maður er virkilega sjálfmenntaður frá þriðja bekk. Eina sem ég kenndi sjálfum mér ekki var að skrifa og lesa. En jafnvel það var gert svo ílla að ég er ekki einusinni góður að skrifa Íslensku. Afþví ég átti heima í Svíþjóð og lærði að skrifa og tala sænsku, svo Ísland í 3 bekk og byrjaði þar að læra og skrifa Íslensku. Lærði aldrei "grunninn".
En já Íslenska skólakerfið. Endaði þegar Holtaskóli endaði.
Með tímanum þróuðust tölvur og kóðar. Þannig einusinni var maður gáfaðastur á Íslandi þegar kom að kóðun. En í dag kann maður það ekki afþví það eru allt aðrir kóðar. Ég get lært það ef ég vill það, ekki eins og það sé erfitt. Smá Google: "Coding Tutorials" eins og ég man eftir því þá. Þá var allt frítt. Nú er allt í auglýsingum eða þú þarft að skrá þig inn á þessa síðu og bla bla bla. Þegar ég var ungur þá skrifaði maður þetta á yahoo(Já, yahoo var stærri en google veit ekki hvað breyttist, hef ekki skoðað það) og þá fékk maður endalausar síður TROÐ FULLAR!!!!!!! Af kóðum líkt og þessu:
https://www.w3schools.com/html/ Þetta er virkilega eina síðan sem ég finn sem kennir eitthvað gjaldfrjálst. En þetta er svo úrelt að fólk gæti alveg eins verið að læra það sem ég var að læra sem unglingur.
En nóg um það! Nóg af væli um hve skólarnir á Íslandi eru mikið rusl og sanna sig með því að sýna hve gríðalega mikið af Íslenskum ungmennum eru "dópistar" og eða nota "Fíkniefni eða lyf". Við erum að tala um unglingar Íslands nú til dags eru háð eiturlyfjum og eða lyfjum. Gríðalega mikið af þeim allavega. Svo mikið að við vitum af tveimur ungum mönnum sem fóru inn á GEÐDEILD!!!! Talin hættulegir sjálfum sér og enduðu líf sitt. Svo mikið rusl er heilbrigðiskerfi Íslands. Hvernig geta, hvað voru þeir gamlir? 13 ára? Tveir 13 ára unglingar farið á geðdeild og eiga vera undir "vakt", endað líf sín inn á geðdeild Íslands þegar þau eru undir sjálfsvígshættuvakt, ítreka... INN Á GEÐDEILD ÍSLANDS!!!! SJÁLFSVÍGSVAKT!!!!
Já, það komast í gegn nemendur en hvað eigum við að segja? Af þeim 100% sem fara í framhaldsnám enda 25-40% í háskólaútskrift? Restin eru dropouts af sjálfum vilja, aðrir útaf öðrum ástæðum, fjölskylduvandamál, vinir og fleira. Ekki góð hugmynd að vera í dópistavinahóp og skóla. Svo tölum við um restina sem fer ekki í framhaldsnám. Hvað verður um það lið. Mikið af þeim endar í góðum láglaunavinnum en restin endar í fíkniefnum. Það er sorglegt að sjá hve mikið af Íslendingum eru háð alskonar lyfjum og fíkniefnum. Þið haldið að "ég" viti ekki. Trúið mér, ég veit. I know stuff....
Afhverju er ég að vola og væla um þetta allt eftir alla mína jákvæðni undanfarið? Í jákvæðni minni hefur maður verið að hugsa hvernig líf manns væri í dag ef nr 1. Skólinn brást manni ekki. nr 2. að einhverjir tveir mongolítar stungu mann næstum til banna. nr 3. að hitt og þetta gerðist ekki. Ætla ekki að fara telja upp í 300. Þegar maður hugsar jákvætt sér maður líka neikvætt. Því miður er ekki hægt að sjá eitt án hitt. Það er bara hvað maður ákveður að lifa við.
Til dæmis eins hrokafullt og það hljómar tel ég mig geta unnið vinnu þessara Íslensku "þingmanna/ráðherra" þúsund sinnum betur en þeir. Ég hélt að það væru kosningar á næsta ári og ætlaði að vera tilbúinn en áttaði mig svo á því að það er í ár og ég er ekki tilbúinn. Þannig ég hafði ekki ár í viðbót til að gera mig tilbúinn. Hinsvegar heldur áætlun mín áfram. Það er ekki eins og ríkisstjórn Íslands muni ekki splúndrast innan við ár eða tvö. Akkurat þegar ég er 100% tilbúinn. Tilbúinn í huga, líkama og sál.
Þannig þá er bara að undirbúa sig fyrir það. Ég veit hvernig er hægt að vinna kosningar á Íslandi. Ég veit hvernig maður smíðar nýjan stjórnmálaflokk. Setur upp stefnur. Fær virkilega þúsundir til tug þúsunda fylgi á einu ári. Ég veit það. Ég veit líka hvernig er hægt að gera Ísland að betra landi. Fyrir lifandi Íslendinga og börn Íslendinga. Ég gæti virkilega aukið Verg Landframleiðslu Íslands um 1-2% eins og að smella fingri mínum. Ísland yrði troð full af atvinnu. Ísland yrði gríðalega ríkt land. Ísland yrði gríðalega vel virt um heim allan. Lausnin er öll í höfðinu mínu.
Við erum að tala um að ef fólk vill byggja sér fyrirtæki yrði það gríðalega gott og auðvelt fyrir fólkið. Ofan á það væri svo mikil atvinna að það væri flóð af atvinnu fyrir fólk sem vill frekar vinna. Fólk sem vinnur með menntun. Fólk sem vinnur fullar vinnur. Fólk sem vill bara vinna. Það væri endalaust framboð. Hringvegur Íslands yrði tvöfaldaður í þessu gríðalega nýja og ríka Íslandi. Svo fyrir fólkið sem getur ekki unnið. Það verður "svæft". Cmon, mátti hafa smá brandara með. Þessi sorglega léleg afsökun af "Örorkubótum" og eða "Ellilífeyriseyrir" yrði hækkaður um minnst 50%. As in ef mannvera er með 240.000-260.000kr á mánuði eftir skatt án öll aukagjöld eins og leigutekjur, húsnæðisgjöld og svo framvegis. Man ekki hvað þetta er allt kallað. Það yrði þá(segjum 250.000). Þá yrði 250.000 + 125.000 = 375.000 plús öll þessi aukagjöld sem við töluðum um. Veit ekki hvað öryrkjar eru að fá mikið í fulla greiðslu nú til dags með húsaleigubætur, uppihald og svo framvegis eins og ég sagði "man ekki hvað það er kallað". En minnir að það var rétt undir 400.000. Sem myndi gera það plús rétt undir 200.000 = rétt undir 600.000. Afþví öryrkjar samfélagsins hafa verið vinnandi fólk sem hafa misst getu sína á að vinna afþví þau hafa lennt í áföllum, slysum og svo framvegis sem gerir það að verkum að mannvera sem var að vinna með 1.1m í laun á mánuði eftir skatt. Dettur niður í 200.000-400.000? Útaf atvikum sem hann eða hún ræður ekki við. Þau verða fórnalömb í slysum og launin þeirra eru virkilega skorin í meira en tvennt. "Boom". Vill fólk það virkilega? Þetta getur gerst fyrir hvern sem er. Þú gætir verið úti í samfélaginu með þín öflugu laun svo boom. Ertu orðinn öryrki sem öllum er skít sama um.
Hvernig verður þetta borgað, eins og ég sagði. Ísland mun verða eitt af ríkustu löndum Norðurlandana á innan við ári. Allt sem viðkemur Íslandi mun blómstra. Frá ferðamannaiðnaðinum til fiskiiðnað Íslands. Búfénaður til byggingar. Það verður vinna í öllu og allt mun skapa fjármagn. Ef Íslenskt kjöt er ekki sent út nú þegar sem öflugasta kjöt á Jörðinni mun það verða það. Frá búfénað Íslands til fiskiiðnað Íslands. Allt mun virkilega blómstra og verða selt út.
Það er ekki til vandamál á Íslandi sem ég er ekki með svar fyrir til að bæta og gera betur. Ég heiti Einar Haukur Sigurjónsson og er búinn að vera rannsaka Ísland og Íslendinga í 30 ár. Allt sem Ísland og Íslendingar þurfa verður til staðar.
Það eru um 8 VIRKIR!!! flokkar á Alþingi. Af þeim 8 er einn flokkur sem telst "Hægri sinnaður". Sjálfstæðisflokkurinn. Restin er "Mið-Vinstri" eða 100% "Vinstri" svo framvegis. Því miður eins og einhver benti á um daginn eru "Íhaldsmenn" eins og ég, svo miklir "Íhaldsmenn" að jafnvel þó svo að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í dag er ekki gott fyrir mig. Geri ég það samt. Afþví það er að vera "Íhaldsmaður/Conservative". Við höldum í það sem við erum sama þó Sjálfstæðisflokkurinn sem við kusum er löngu dauður. Afhverju haldiði að Sjálfstæðisflokkurinn er að hverfa og hverfa og hverfa? Afþví Íhaldsmenn eins og ég eru að vakna. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki lengur flokkurinn sem ég studdi. Því er val A(Verða virkur í Sjálfstæðisflokknum og reyna breyta honum að innan), sem ég veit að virkar ekki afþví það er til svokallað smit. Þú ferð inn með þínar hugmyndir en svo gefuru eftir eina hugmynd, svo aðra, svo aðra, svo aðra. Áður en þú veist af ertu sami skíturinn og Sjálfstæðisflokkurinn að reyna fá 18% á landsvísu. Eða hvað sem þau fengu í síðustu kosningum. Yfir 20? 24? Man ekki, skiptir ekki máli. Man það var bara lægra en þar á undan og lægra þar á undan og svo framvegis. Það er ekki afþví "Íhaldsmenn" hafa ákveðið að kjósa "Sósíalista" eða aðra vinstri flokka. Nei. Ég held að Íhaldsmenn hafa bara ákveðið að hætta kjósa afþví þau eru að bíða eftir mannveru eins og mér og mínum. Einhvern sem er tilbúinn að virkilega taka þetta upp aftur sem þau kusu og létu sig dreyma um að kjósa allt sitt líf. B(Stofna flokk og byrja á byrjun) Við virkilega höfum "1 svokallaðan hægri flokk af 8, 7 vinstri flokkar á Alþingi gegn einum wannabe hægriflokk..." En það er ekki jafn auðvelt og þú heldur Einar, við sjáum aðra hægri flokka reyna....
Já, við sjáum aðra hægri flokka reyna. En þau hafa ekki sömu formúlu og ég. Hvernig á að byggja upp stjórnmálaflokk. Það er eins og ég var alinn upp til þess. Þegar ég var ungur var virkilega forritað inn í mig formúla sem ég á ennþá í dag. Þannig... Dú dú dú, dúuuu......
Fórmúlan er flóknari en fólk heldur en hún er til. Ég lærði hana sem barn án þess að vita það. Sama taktík önnur leið.
Þannig framtíð Íslands mun hafa sólskín aftur. Haldið í von ykkar á meðan ég: "Come along, follow me as I lead through the darkness
As I provide just enough spark that we need
To proceed, carry on, give me hope
Give me strength, come with me and I won't steer you wrong
Put your faith and your trust as I guide us through the fog
To the light at the end of the tunnel, we gon' fight, we gon' charge
We gon' stomp, we gon' march through the swamp
We gon' mosh through the marsh, take us right through the doors, come on".
Þetta er ég að segja "Fuck þessi elíta sem heldur hún geti bara haldið utan um Ísland eins og það sé bara eitthver eign sem þau eiga.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.