18.12.2020 | 12:46
I was born to rule the world...
Ég var að horfa á eitthvað grín frá Norm McDonald síðan 1997 eða 1998 man ekki. En Clinton var forseti. Hillary Clinton var þarna. Þá fékk ég minningu í höfuð mitt...
Sú minning er umræðan þar sem hún sama sem segir að hún fæddist til að vera forseti, mjög líklega forseti Bandaríkjanna. En já...
Það er virkilega ekki nóg að vera svo heppin að lifa í veröld á toppnum. Lifa í veröld þar sem þú getur gert allt sem þú vilt án afleiðingar. Lifað í veröld þar sem þú getur keypt eða eignast hús sem prinsar lifa í. Að fæðast í veröld þar sem allt snýst um þig og fólkið í kringum þig. Það er ekki "nóg". Manneskjan þarf virkilega að segja að í öðrum orðum "Ég var fædd til þess að vera forseti". Samt ekki í þessari setningu.
Ímyndið ykkur það! Hve ógeðsleg mannvera þarf að vera. Við erum að tala um okkur litla fólkið hérna sem hugsum stundum "Fæddist ég ekki fyrir meira en þetta"? En að virkilega vera á TOPPNUM!!!!! Og segja svona hluti.
Það er eins og ég væri að vinna við að malbika og segja "Ég fæddist til að eiga þetta fyrirtæki". Það er ekki nóg fyrir mig að vera verkamaður og vinna mína vinnu í kringum gott fólk. Ég þarf virkilega að hafa fæðst til að vera "yfir" öllu fólkinu í kringum mig.
Það er ekki nóg fyrir að vera svo ógeðslega heppin að vera hluti af þessu 1% um heim allan. Heldur þú þarft að horfa í kringum þig og hugsa "Ég fæddist til að vera æðri en allt þetta fólk". Ég ítreka, hún sagði það ekki í þessum orðum en gaf það í skyn. Get deilt tengil á það ef þið viljið. En að virkilega vera hluti af þessu 1% fólki Jarðarinnar og virkilega horfa á fólkið í kringum sig og segja "Ég fæddist til að vera yfir þessu fólki". Hve viðbjóðslegur sækó þarf maður að vera?
Ég hef ekki falið það að mér líður oft eins og ég hafi fæðst til að byggja heimsveldi. En ég er að tala um að byggja það frá grunni. Að fá fólk hér þar og alstaðar til þess að fylgja mér. Að sannfæra þig, hann, hana og þessa til þess að samþykja mig sem leiðtoga þeirra til þess að búa til nýja og betri veröld fyrir okkur öll. Það er ég, hérna með þeim lægstu í fæðukeðju mannkyns að reyna sannfæra hinn og þennan um hitt og þetta.
En að vera á toppnum og virkilega hugsa svona.
-
En svo að öðru, oft komu tækifæri í mínu lífi sem heili minn var of heimskur til að fatta að væru tækifæri. Eins og ég fór oft á djammið með mína myndavél að taka myndir. Þær allar myndir eru horfnar. Eyddar fyrir löngu. Myndavélar í rusli og svo framvegis. En það kom einhver upp að mér "Fyrir hvern ertu að taka myndir?" Ég svaraði "Er bara taka myndir fyrir sjálfan mig" bla bla bla... Hann trúði mér ekki. Afhverju veit ég ekki. En hann bauð mér svona "vinnu" fyrir þeirra heimasíðu sem var að taka myndir af næturlífi Reykjavíkur á sínum tíma. Heili minn sagði nei og ítrekaði ég að "Ég er bara taka myndir fyrir sjálfan mig".
Svo heimskur var heili minn og er ég í dag meir og meir að fatta að þegar ég var ungur var mér oft boðið tækifæri til að gera hitt og þetta. En það er eins og skilaboðin fóru ekki í meðvitund heilans. Þau fóru í heilan sem skilaboð og búið. Stopp.
Eins og ég veit ekki með ykkur... En þetta gerðist oft fyrir mig, ég var sitjandi með nokkrum vinum mínum inn á bar og það kom þessi sæta stelpa með tvo bjóra. Við erum að tala um þvílíkt sæt stelpa. Stelpa sem hefur mjög líklega notað allt sem hún hefur til að byggja sig upp í að gera það sem hún gerði. Hún gekk að mér og settist í stól við hliðiná mér með tvo bjóra og bauð mér einn. Heili minn eins siðblindur og hann var, var ekki að fatta þetta "Nature" kjaftæði sem væri í gangi. Hún var að reyna við mig. Hún kom og bauð mér bjór. Vandamálið var bara "Ég drakk aldrei og drekk ekki bjór". Þannig ég sagði "Nei takk". Þá þurfti hún að standa upp aftur og ganga í burtu... Hugsandi til baka að hafa gert kvenmönnum þetta. Þó það fær mig ekki til að líða ílla. En ég skil núna hve gríðalega ílla þeim hefur liðið. Þessi "höfnun". Beint í smettið á þeim. Ég var ekki að fatta að hún vildi tala við mig. Vildi kynnast mér. Eina sem heilinn sagði mér er "Hún er að bjóða mér bjór, ég drekk ekki bjór. Svar = Nei takk". Búið. Hélt svo áfram að tala við vini mína. En vá, hvað ég hef mjög líklega rústað í þeim sjálfsímyndina. Hvort sem ég sat með vinum mínum á borði eða við bar að tala við vin minn og stóll var laus við hliðiná mér. "Viltu bjór?" Heili Einars: "Ég drekk ekki bjór". Svar = Nei takk. Umræðan búin. Í staðin fyrir að segja "Já, ég vill bjór fáðu þér sæti" borsandi og spjalla við hana. Svo leyfa henni bara drekka sinn eigin bjór afþví ég drekk ekki bjór.
Það sem ég myndi gera ef ég gæti farið aftur í tíman og tekið þennan heimska unga mann og barið í stöppu. Sjálfan mig...
Þarna voru kvenmenn virkilega að sækjast eftir því að eiga við mann samskipti og eina sem maður gerði var "Nei takk" búið. NEI TAKK BÚIÐ!!!!!!!!!!!!!!! Djöfull hvað ég hata heila minn. Allt sem var náttúrulegt fyrir ykkur hef ég þurft að læra í gegnum svokallað "Trials and errors". 15-17 árum seinna loksins fattar maður... "Já, það er það sem hún vildi".
Djöfull hvað maður var ógeðsleg mannvera og ekki skrítið að mannverur eru alltaf að reyna drepa mann.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.