Hver ert þú???

Ég spyr í alvöru, hver ert þú?

130268435_10159001497578945_3020446148975559526_o

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ert þetta þú? Nú þegar ríkisstjórnir um heim allan hafa tekið af þér persónuleika þinn. Tekið af þér andlit þitt. Tekið af þér frjálsan vilja þinn. Taka af þér þína gríðalegu háu menntun og atvinnu ef þú gerir ekki það sem þau segja. Skilja þig eftir í veröld þar sem þú hefur ekki einusinni val til að hafa persónuleika lengur. Við gætum verið æskuvinir en þegar við göngum framhjá hvort öðrum í samfélaginu þekkjumst við ekki. Afþví þú ert það sem samfélagið segir þér að vera. Ríkisstjórn þín segir þér að vera. Það er ekki bara "einn" hámenntaður "lýtalæknir" sem talar gegn Covid-19. Það eru tug þúsund læknar um heim allan sem gera það. En þú verður að vera persónuleikalaust drón sem gerir það sem ríkisstjórnin segir þér að gera annars færðu sko að finna fyrir því. Ég vissi að Ísland væri komið í Kommunista ræsið með öll þessi fáfróðu drón sem fylgja hverju einasta orði sem Íslenskir fjölmiðlar segja þeim að gera. Við erum að tala um að í Ástralíu er fólk handtekið bara fyrir að setja póst á Facebook þar sem þau segjast ætla mæta á mótmæli gegn þessu Kommunista stjórnkerfi sem þau þurfa lifa í.

Er þetta virkilega veröldin sem þú vilt lifa í? Finnst ykkur þetta lýðræði? By the way á svipuðum tíma var "Black Lives Matter" í Ástralíu með mótmæli og það var allt í lagi. Hver ákveður að það er í lagi að mótmæla "Black Lives Matter" en ekki þetta? Ekki það að ég hef verið að fylgjast með Ástralíu eitthvað mikið en er verið að skjóta svart fólk þar? Af minni bestu vitund er lögreglan í Ástralíu mjög lík lögreglunni í Bretlandi, þau ganga ekki um með skotvopn. Svona eins og Íslenska lögreglan. Hvenær verður þetta á Íslandi? Að fólk má mæta og mótmæla því að flóttamenn eru sendir úr landi en fólk sem vill ekki ganga með grímur verða handtekin bara fyrir það eitt að búa til "Facebook póst".

Ég ætla segja það sama og ég er búinn að vera segja síðustur 20 ár. "Internetið er ný tegund af geðveiki. Þar sem fólk er orðið of geðveikt til að vita að þau eru orðin geðveik". Nema nú er þetta að hafa áhrif á raunveruleg líf fólks. Þannig allt þetta geðveika fólk lifir í þessum syndarveruleika og virkilega taka mark á hvað Facebook, Twitter, Google segir að er "rétt og rangt". Þetta lið er allt með nákvæmlega sama "independent FACT-CHECKERS" sem fara yfir hluti sem þú sérð með berum augum. En þau skella á það stimpil og segja "Þetta er ekki satt". Þeirra "Independent FACT-CHECKERS" hafa komist að þeirri niðurstöðu að það sem þú sérð með berum augum í hinu og þessu myndbandi er ekki "satt". Viltu ennþá horfa á myndbandið? Það er löngu vitað að þetta eru allt vinstri sinnaðir Kommunistar sem fara yfir þetta og ákveða hvað er rétt eða rangt. Meira segja Republikanar í Bandaríkjunum hafa verið að drulla yfir Mark Zuckerberg og hvað sem hinn Hippsterinn heitir sem á Twitter fyrir akkurat það að ritskoða hitt og þetta en ekki annað. Hvað svarar þessi viðbjóður? "We have Independent FACT-CHECKERS that make these decisions. This has nothing to do with us..." Kannski finna sér betri fkn Fact Checkers. Í staðin fyrir að ráða eitthvað hyski sem eru allt Kommunistar. Eftir 20 ár af veröld þar sem allt og allir eru að verða "geðveik" útaf internet rusli. Þar sem fólk blótar þér fyrir að vera ekki jafn geðveik og þau. Fyrir að vera ekki jafn mikið fórnalamb og þau. Fyrir að hafa ekki jafn mikið samviskubit og þau fyrir fólki sem enginn þekkir. Þú átt bara að hafa samviskubit og elska fólk sem þú þekkir ekkert sem eru að koma til landsins rífandi vegabréf sín um leið og þau stíga upp í flugvélina til Íslands. Þú átt að hafa samviskubit fyrir þeim, þú átt að elska þau meira en fólkið í þínu eigin landi. Hverjum er ekki alveg sama um að "Íslendingar eru að þjást?" Flytjum inn meira fólk svo fleiri geti þjáðst. Svo núna er þetta lið að segja þér að rífa af þér andlitið og ganga um andlitslaust. Gangandi um með grímur. Minnir mig rosalega á þættina "Watchmen". Þar sem lögreglan gengur um með grímur og glæpamennirnir. Þannig engin veit muninn á hvor er hvað. Eitthver rasista hópur gengur um með grímur. Eitthver lögregla gengur um með grímur og þú virkilega gætir ekki vitað hvort að dag einn er lögreglan að ganga um í "rasista grímu" og næsta dag "lögreglu grímu".

Þetta erum við að verða... Sálarlaus, trúlaus, með engan persónulegan persónuleika. Verðum öll að vera "hluti af hópnum". Gangandi um með ekkert andlit. Þannig núna eftir að þú ert búin að lifa í 20 ár á internetinu "Sem er ný tegund af geðveiki sem fólk veit ekki að það er orðið geðveikt af". Ert búin/n að missa þinn persónuleika og ert hluti af "hópi" á veraldarvefnum sem virkilega trúir allt og öllu sem, ég verð að minna ykkur á þetta. Sem virkilega TRÚA!!! Allt og öllu! Sem að "SAMFÉLAGSMIÐLAR" segja þeim hvað er hvað. Við erum ekki að tala um að þetta lið eru drón fylgjandi Ríkisstjórn eins og kommunista hyski. Við erum ekki að tala um að þetta eru drón sem fylgja fjölmiðla eins og heimskt hyski. Við erum að tala um að þetta er fólk sem fylgir SAMFÉLAGSMIÐLUM!!!! Miðlar sem eru ætlaðir til þess að tengja fólk. Miðlar sem ákveða hvað má birta og hvað má ekki. Hvað fær stimpil sem segir "Þetta er rangt og hvað ekki". SAMFÉLAGSMIÐLAR!!!! Þú gætir virkilega sett á SAMFÉLAGSMIÐIL!!!! Upptöku af Hrafn fljúgandi. Ef það birtist "Our Independent FACT-CHECKERS have found this video to be wrong". Þá hættir fólkið að trúa sínum eigin berum augum og taka mark á því. Augu þín segja þetta er Hrafn. En SAMFÉLAGSMIÐLAR!!! Segja þetta er ekki Hrafn. Þá er þetta ekki Hrafn. Ef þú samþykir það ekki þá ertu bara heimskur fáviti sem veist ekkert. Afþví SAMFÉLAGSMIÐLAR!!! Vita allt. Kenna þér allt. Segja þér hvað er hvað. "Það virkilega stendur að þetta er ekki Hrafn, þarf ekki meiri sönnun til að segja mér að þú hefur rangt fyrir þér". Hvað er þetta þá? Ó... Það er ekki vinna þeirra að segja þér hvað þetta er. Það er bara vinna þeirra að segja þér hvað þetta er ekki.

Til hamingju, þú ert geðveik mannvera sem veist ekki einusinni að þú ert geðveik afþví sálfræðingar, geðlæknar hafa ekki ákveðið að gera rannsóknir á þessu afþví það lið er jafn geðveikt og þú þegar kemur að veraldarvefnum.

Sum ykkar sem lesið þetta ef þið virkilega lesið þetta munið eftir samfélagi þar sem hægt var að sitja saman í sal eða við borð og rætt málin. Ég er bara 37 ára en ég man eftir því. Núna er það "Við erum bestu vinir frá því við vorum í leikskóla. En þú hefur ekki sömu hugmyndafræði og hópurinn. Þannig ég verð að eyða þér sem vin og hætta tala við þig. Bæ!" Æskuvinir að loka á hvort annað. Fjölskyldur að loka á hvort annað.

Næst þegar þú segir "Ég er trúlaus". Haltu kjafti. Þú trúir á Guðinn Facebook. Guðinn Twitter. Guðinn Google. Það er þín trú. Þannig ekki segja fólki að þú ert trúlaus. Þú myndir deyja fyrir þessa heimsku hóphugmyndafræði. Ert ekkert skárri en þessir svokölluðu "Crusaders" eða "Jihadists". Nákvæmlegi sami skíturinn önnur trú. Ekki þú? Ert þú ekki sú manneskja sem myndir klæða þig í öllu svörtu og kalla þig "Antifa" og berja fólk til óbóta fyrir að hafa aðrar skoðanir en þú?

Ég virkilega skil ekki afhverju það er ekki löngu búið að loka öllu þessu rusli. www.hugi.is var virkilega nógu merkilegur miðill í gamla daga. Þar voru fólk að tala um sín persónulegu áhugamál. Sínar hugmyndir. Veit ekki hvað er að gerast með þann vef í dag. En, Facebook, Twitter, Google. Þessir öflugu Guðir ykkar. Þeir ákveða hvað er rétt og rangt. Þeir ákveða hvað þú veist og hvað þú veist ekki.

Internetið er ný tegund af Geðveiki og fólkið sem notar það er orðið of Geðveikt til að vita það.

Virkilega 20 ár... "En Einar, ef Hugi var svona mikið betri en Facebook, Google, Twitter... Afhverju ertu búinn að vera segja þetta í 20 ár?" Afþví þið kannski munið ekki eftir því og eða voruð ekki fædd. En ég man eftir "Blogg menningunni". Þar sem nafnlaust fólk var að ráðast á hinn og þennan fyrir hvað sem það vildi. Fólk var að leggja annað fólk í einelti löngu áður en þessir Guðir komu inn. Ef mannvera getur setið bakvið tölvuskjá "Nafnlaus" að hrauna yfir hina og þessa persónuna fyrir það eitt að vera sú persóna. Það eitt og sér er viðbjóðsleg tegund af geðveiki. Sitjandi heima að kvöldi til í myrkrinu að "blogga" leyndarmál fólks. Mætir svo í vinnuna og þykist vera góður vinnufélagi og jafnvel vinur fólksins sem þú ert að tala við í vinnunni en talar ílla um á nóttunni.

13 ára stelpa, lífið hennar er erfitt heima. Lífið hennar er erfitt í skólanum. Lífið hennar er ekkert skárri á SAMFÉLAGSMIÐLUM!!!
Hún gerir póst... "Ég veit ekki afhverju ég er á lífi. Ég hata líf mitt. Mig langar ekki að lifa". Hún er að sækjast eftir hjálp á eina staðnum sem hún veit af. Svörin eru: "Dreptu þig", "Þú ert ógeðsleg", "Farðu bara og hengdu þig enginn vill hafa þig hérna", "Þú ert hóra", "Það er leið úr þessari veröld þú ert bara of mikill ræfill til að taka hana..." og endalaust meira. Ekki viku seinna finnst hún látin eftir sjálfsmorð. Einusinni var hjálpað svona manneskju. Núna er þetta það sem svona manneskja fær. Guðirnir sem þið fylgið. Múgurinn sem þið viljið vera hluti af.

Hardcore fólk... Internetið er ný tegund af geðveiki og fólk er of geðveikt til að vita að það er orðið geðveikt.

Afhverju þykist þú vera ónæmur Einar? Afþví þú getur ekki gert mannveru sem er með persónuleikaraskanir geðveika. Það segir allavega réttarkerfi Bandaríkjanna. Ef þú ert það geðveikur að þú ert með "Persónuleikaröskun". Þá ferðu samt í fangelsi afþví þú veist. En ef þú ert ekki með persónuleikaröskun og verður geðveik þá er hægt að lækna þig. Fyndið?

Frá 1999.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband